Börn og unglingar
Börn 6 ára og eldri
Aðallega unnið með almenna samkvæmisdansa í bland við aðra skemmtilega dansa. Lögð áhersla á góðan grunn og tækni til þess að gefa þeim tækifæri til þess að geta dansað með öryggi og tilfinningu.
Unglingar
Við bjóðum upp á hressa og skemmtilega tíma í samkvæmisdönsum fyrir unglinga þar sem farið er í almenna samkvæmisdansa. Lögð áhersla á jákvæðni og jákvæða uppbyggingu.
Keppnishópar
Keppnishópar eru fyrir þá sem hafa áhuga á að keppa og sýna og stefna hátt í dansinum. Erlendar keppnisferðir og mikill metnaður er einkennandi fyrir keppnishópa.
Einkatímar
Bjóðum upp á einkatíma fyrir pör og einstaklinga fyrir öll tækifæri. Hvort sem þú ert að fara að keppa á Íslandsmeistaramóti eða vilt verða öruggari á byrjendasporunum þá getum við aðstoðað.